Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1642 — 20. mál.
Nr. 58/145.
Þingsályktun
um aukinn stuðning vegna tæknifrjóvgana.
Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að endurskoða reglur um greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgunarmeðferða fyrir árslok 2016. Við endurskoðunina verði m.a. gætt að eftirtöldum atriðum:
1. að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga nái til fyrstu glasafrjóvgunarmeðferðar,
2. að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga sé óháð því hvort pör eða einstaklingar eigi barn fyrir.
Samþykkt á Alþingi 8. september 2016.